Ekki á morgun, ekki á hinn, heldur hinn...

SullumbullJæja gott fólk!

Nú röltum við af stað eftir þrjá daga - og eftir sex daga sitjum við á þúfu og samfögnum afmælisbarninu. Gaman væri nú að fá að sjá lista hjá Stekkholtshyskinu yfir hverjir mæta og hvenær.

Mamma er byrjuð að skipuleggja mat og drykk og ætlar að fóðra örverpið á morgnana og svo geri ég fastlega ráð fyrir að konan á áttræðisaldrinum geri gott stopp í versluninni með veigarnar. Whistling

Fyrir veðuráhugamenn þá er komin spá fyrir helgina: http://vedur.is/vedur/spar/stadaspar/sudurland/ - við getum alltaf talað um veðrið ef fólk hefur ekkert að segja núna næstu daga...

Kveðja,

Aldan


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alda mín - heldur þú að mamma þín hafi ekki verið að tala um mig?  Hún hefur svo oft kallað mig örverpið. Mikið finnst mér þetta hugulsamt af henni.

MUUUUUUUHHHHHHHHHHAAAAAAAA 3 dagar eftir HILDUR

Örverpið fyrir norðan (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 10:30

2 Smámynd: Bakkafjölskyldan

Alda mín, aldrei að vita hvað gerist á morgun. Ég sit hér og hræri í tölum og hárinu til skiptis. Hvenær ætli þessi komi og hvenær hinn. Örfáir eiga eftir að láta vita svo við getum farið að deila. Hvað skal láta blessað fólkið borga. Ég vildi ég væri rík þá fengju allir frítt. Þetta kemur allt. Munið eftir öllu og viskastykkjunum líka, flugnanetunum, blautþurrkunum(Hildur upplýsti mig um að þær væru ekki bundnar við ungabörn), góðaskapinu og skemmtiatriðunum.

Fjölmennt á laugardagskvöld 70 bakkarar munu eta þar í sól og sumri.

Nóttin svo tveir dagar Kv. Hulda fr.  

Bakkafjölskyldan, 18.6.2007 kl. 22:08

3 identicon

Ekki gleyma síðasta í Bakkarölti  Er búin að semja við Hann um þurrt hæglætisveður. Reyni að halda mér á mottunni svo að Hann skipti ekki um skoðun. Miðla hér til ykkar leiðarlýsingu í Guðmundarlund. Hún kemur frá samstarfskonu minn sem líst ekkert á leiðarlýsinguna hjá okkur. Hún tók sig til og prufukeyrði leiðina með blað og blýant - sá fram á ratleik að öðrum kosti:

Fara inn á Breiðholtsbraut á öðrum hvorum endanum

Beygja inn Vatnsendahvarf á ljósunum. ( Þar á horninu eru Hestar og menn. Húsasmiðjan og Bónus )

Keyra beint áfram Vatnsendaveg

1. hringtorg áfram  ---------"---------

2. hringtorg áfram  ---------"---------

3. hringtorg  á hægri hönd er Hörðukór 2,  13 hæða blokk ( sem þið sjáið langar leiðir )

Beygið til vinstri út úr hringtorgi 3  Þingmannaleið

Fljótlega kemur 4. hringtorgið þá sjáið þið í hesthúsin á Heimsenda.

Farið fyrir ofan heshúsin meðfram moldarbing ( til vinstri ) og keyrið upp hæðina

á ólmalbikuðum vegi beint ( á ská ) í Guðmundarlund

Hildur frænka (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 23:05

4 identicon

Sjúkk - ein nótt og svo að setja loft undir vængi. Nú verð ég að drepast úr áhyggjum, því hér er svarta þoka sem aldrei fyrr og full oft er þetta svona í nokkra daga. Hildur,  þú verður að eiga við Hann tal um þoku. Annars koksast Laugavegsgangan okkar á morgun. Fyrir þá sem ekki eru upplýstir þá var mér falið að láta Hildi velja sér eitthvað í afmælisgjöf. Tók enga sjénsa með að það tækist á klukkutíma eða svo og ætlum við því að nota tímann frá hádegi á morgun og fram á kvöld í þessa athöfn. Gerum ráð fyrir að hvíla okkur með reglulegu millibili. Í það minnsta er klárt að það fyrsta sem við ætlum að gera er að fá okkur að borða (kemur verulega á óvart). Hlakka til að hitta þá sem mæta á svæðið og kem örugglega til að sakna hinna. Kv.Þoka

P.S. Auður mín - heldur þú að þið gætuð ættleitt kjetbita fyrir á grillinu annaðkvöld?

Akureyrafrúin utan ár (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 08:26

5 identicon

Örverpin mín tvö sunnan og norðan heiða. Ég skal sjá ykkur fyrir morgunverði votu og þurru, kaupa ríflega í nesti fyrir ykkur á labbið en svo þrýtur mín gestrisni.

Sjáumst eftir tvo sólarhringa!

Sú á áttræðisaldrinum (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 10:29

6 identicon

YYYYYYYYYYYYYYYEEEEEEEEEEEEEEEEESSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS þetta tókst

Mikið ertu frábær Lilla

Örverpið fyrir norðan (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 11:14

7 identicon

Jahérna hér, hvað má Laugarvegurinn vara sig? Verður skrúðganga?

 Valdís mín, það er ALLTAF pláss fyrir einn enn

Auður (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 17:10

8 identicon

Eeeeeelllllllllsssssssskuuuuuuuu Auður!

Sko, Bjarki og Anna María eru að snúast í hringi og vita ekki hvenær þau koma og þau eiga grillið (sem þau vita reyndar ekki hvar er, en það er önnur saga)! Ef við mamma brosum blítt er þá nokkur möguleiki að lauma bitum við hliðina á Valdísi - a.m.k. á fimmtudagskvöld??? Aldrei að vita nema nokkur myntulauf fljóti með í för

Annars getum við náttúrulega alltaf bara búið til bál úr sprekum eða steikt egg á næstu heitu bílvél...

Aldan (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 22:08

9 identicon

Mamma.....

... fæ ég ekkert nesti nema rabbabara?

 Kv.

Þrastarparið í Habbnarfirði

Hrúturinn (IP-tala skráð) 20.6.2007 kl. 20:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bakkafjölskyldan
Bakkafjölskyldan
Hér er vettvangur fyrir alla þá sem tengjast hinni víðfemu Bakkafjölskyldu beint eða óbeint að blogga um hið árlega Bakkarölt.

Bloggvinir

Myndaalbúm

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 394

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband