6.6.2007 | 09:54
Plan.
Vona að allir séu búnir að fá planið (líka í pósti)og farnir að liðka liði og skó. Það lenti tvisvar inni á síðunni. Gott væri Alda mín að þú hentir nú öðru út fyrir mig. Eins og þú veist er ég alltaf jafn frek tek mér tvö sæti þó mér dugi bara eitt (ennþá). Er að bresta til Keflavíkur, að sækja hann Gunna minn.Stelpur mínar, litlu systur, þið þurfið ekki að telja neinn kjark í ykkur, þetta er allt í lagi fínn tugur. Maður getur með góðri samvisku borið hinu og þessu við ef maður nennir ekki einhverju. Ég hef svo sem ekki fundið neina breytingu, er alltaf 17 eða svoleiðis. Við eigum allar góðan möguleika á að ná 90 árum eða meira.
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já sko fyrst er að finna kassann sem inniheldur skóna, já og kassann með skóáburðinum, kassana með útivistarfatnaðinum svo við tölum ekki um útilegugræjurnar....tja ætli þetta gefi manni tilefni til þess að taka uppúr restinni af kössunum??? Þvílík og önnur eins leti að vera ekki löngu búin að því .......og ég get ekki einu sinni borið fyrir mig MJÖG hárri elli
Hlakka mikið til að arka um Suðurlandið í góðra manna hópi. Hvernig er það Valdís, verður ekki örugglega steik á fimmtudagskvöldinu???
bkv. Auður í kössum....
Auður (IP-tala skráð) 6.6.2007 kl. 13:24
Sjúkk, nú fann ég þetta. Það er svo langt til jóla að þetta er upplagt tækifæri til að nota sem keyri til að taka upp úr kössunum. Þið getið nú ekki farið frá húsinu með allt í kössum. Upp með innihaldið og drífa sig svo á Suðurlandið
Valdís frænka (IP-tala skráð) 12.6.2007 kl. 08:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.