16.6.2009 | 13:26
Tilhlökkun 2009
Sæl öll. Nú fer óðum að styttast í Bárðardalsdvölina. Flugur sem flogið hafa fram hjá hafa hvíslað að þátttaka sé sem aldrei fyrr. Frábært ,ef þær hafa ekki verið að plata mig. Nú fer að verða spennandi að fá að sjá lista frá Fúsafóstrunum. Maður getur þá farið að undirbúa samræður um þá sem sitja heima. Mig langar líka alveg óskaplega til að vita hversu vel útbúin við þurfum að vera t.d. í sambandi við borð og stóla - tæki og tól, þar sem þetta verður meiri útilega en stundum. Eitthvað er misjafnt hvað mannskapurinn á í sínum geymslum. Hjá þeim sem stunduðu útilegur á fyrripart seinnihluta síðustu aldar eiga lítið sem ekkert - fóru þeir bara til að liggja inni í tjaldi-- múhaaaaaa? Tek fram að í geymslum Tungusíðu leyndist ótrúlega mikill útilegubúnaður - sem Brynjuliðið mun fá að nýta. Hvernig er þetta í Stekkholti og Rein?
Hristum okkur og æfum vel fyrir göngurnar t.d. standa oftar upp og ná sér í vatn, rölta í kringum húsið og þeir hörðustu fara út fyrir túngarðinn heima hjá sér í lgóðan göngutúr. Hef haft fregnir af Esjuförum og fleirum sem hafa verið duglegir við að viðra sig.
Hlakka til að sjá ykkur öll hress og kát
Bestu kveðjur
Valdís frænka
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl mín kæra frænka.... sit núna (sveitt) að taka saman gáfulegar upplýsingar til að senda ykkur... í gær fórum við frænkur tvær að kanna hvernig landið liggur og hlökkum bara til....
Steina Ósk (IP-tala skráð) 16.6.2009 kl. 16:59
Sælt og margblessað veri fólkið. Nú er ferðafiðringurinn að byrja að gera vart við sig. Hef að vísu ekki gengið á Esjuna eða önnur fjöll hér í nágrenninu, hins vegar geng ég langar vegalengdir, ca. einn kílómeter á dag, eftir pallinum í kring um Kálfskinn þegar við erum þar. þúfnagangur er ekki í miklu uppáhaldi hjá mér! Bíð eftir fyrirmælum frá aðalstjórnendum um hvað skal taka með sér, hvaða veg skal aka að Stóru-Tungu, hvernig ég á að haga mér þegar á staðinn er komið, hvar og hvernig greiða skal hlut okkar gömlu hjónanna í sameiginlegum kostnaði, ásamt öðrum hlutum sem ég tel að séu ótaldir en nauðsynlegt að vita um.
Hlakka mikið til að hitta ykkur öll. Bestu kveðjur. Lilla
Lilla (IP-tala skráð) 16.6.2009 kl. 23:10
Sæl verið þið öll.
Nú líður að því og við frænkur og sennilega fleiri farnir að fylgjast stíft með veðurspá.
Ég tel að best muni vera að taka veg nr. 842. sem er vestan Skjálfandafljóts, síðan er farið yfir fljótið á brú hjá Kiðagili, ekið áfram upp dalinn og beygt til vinstri við Víðiker þar sem skilti bendir á Stórutungu.
Listi um hvað hver og einn þarf að greiða mun sendur sennilega í dag ásamt öðrum hagnýtum upplýsingum.
Vegna framkvæmdagleði frændfólks okkar frá Rein hafa fáar stundir fundist til undirbúnings. Reynar vorum við svo heppnar að Patrekur var fermdur og þar gafst smá stund til spjalls.
Valdís , við verðum að finna uppá einhverju fleiru að spjalla um en þá sem ekki mæta þeir eru svo örfáir
Svo má enginn fara úr Mývatssveitinni án þess að koma við í Kaffi Borgum . Það er fallegur staður, útsýnið frábært og sýnir að við eigum kraftaverkafólk í fjölskyldunni (Steina bað mig ekki að skrifa þetta)
Hlakka til að sjá ykkur öll
Fanney
Fanney Óskarsdóttir (IP-tala skráð) 17.6.2009 kl. 08:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.